Bieber og Botnrassa

Andrea, Elsa Lóa, Tandri og Stjúri komast heldur betur í feitt þegar þau sjá auglýsta hljómsveitakeppni í Hörpu. Sigurvegarinn á möguleika á að fylgja sjálfum Justin Bieber á alheimstúr.

Vandamálið er að krakkarnir í hljómsveitinni Botnrössu eru bara 12 og 13 ára – og svo er mamma Andreu í hrikalegu veseni. Þau fjögur eru staðráðin í að semja algjöran hittara fyrir keppnina – og bjarga mömmu Andreu.