Doktor Proktor og tímabaðkarið

Þessi sprellfjöruga saga gerist á nokkrum dögum, eða níuhundruð árum, eftir því hvernig á það er litið. Þau Lísa og Búi fá einstakt tæki færi til að breyta mannkynssögunni þegar þau komast í magnaða uppfinningu doktors Proktors: baðkar sem getur ferðast um tímann. Vandamálið er að þau finna hvergi uppfinningamanninn! Hér segir frá ævintýralegri leit þeirra og flótta undan klækjakvendinu Röspu sem hefur einbeittan brota vilja í garð doktors Proktors.

Doktor Proktor og tímabaðkarið er sjálfstætt framhald bókarinnar Doktor Proktor og prumpuduftið. Höfundurinn Jo Nesbø er Íslendingum að góðu kunnur fyrir spennusögur sínar, en hér sýnir hann á sér aðra og sprenghlægilega hlið.

Jón St. Kristjánsson þýddi.