Háspenna, lífshætta á Spáni

Systkinin Sóley og Ari eru á leið í langþráð frí til að Spánar með foreldrum sínum. En það sem átti að vera þægilegt frí til að hlaða batteríin breytist snarlega þegar skuggalegir menn birtast í kringum þau – og líka náungar sem eiga alls ekki að vera á sama stað á Spáni heldur allt annars staðar.

Háspenna, lífshætta á Spáni er sjálfstætt framhald metsölubókarinnar Friðbergur forseti eftir Árna Árnason.