Í loftinu lýsa stjörnur

Jennu er órótt yfir því hvað brjóst hennar stækka hægt og hún er ástfangin af Sakka sem veitir henni litla eftirtekt. Bekkjarsystir hennar, Úlla, fær alla athyglina. Til að bæta gráu ofan á svart er allskonar afbrigðilega hluti að finna heima hjá Jennu; hjólastól, sturtustól og fjölmargar hárkollur. Mamma hennar er veik og baráttan er hörð.