Kafteinn Ofurbrók og stórkarlalætin í Styrmi Stybban

Georg og Haraldur og eftirmyndir þeirra, gærdags-Georg og gærdags-Haraldur, njóta lífsins. Á hverjum degi fara tveir þeirra í skólann en hinir tveir fela sig í trjákofanum og spila tölvuleiki frá morgni til kvölds – og svo skipta þeir. En eitthvað rotið er á seyði í Skerjavík sem lyktar verr en haugur af óhreinum íþróttasokkum.

Herra Sporti, íþróttakennarinn illráði, hefur fundið leið til að breyta skólafélögum þeirra í hlýðin og námfús fyrirmyndarbörn. Nú hvílir framtíð alls mannkyns á herðum þeirra Georgs og Haraldar og gærdags-Georgs og gærdags-Haraldar!

Frábært flettibíó fylgir!

Með nýjustu myndasögutækni getið þið gert myndirnar sprell-lifandi!

Bjarni Guðmarsson þýddi.