Leyndardómur erfingjans

Kristján litli húkir aleinn á köldu sjúkrahúsi þegar afi birtist með æsispennandi sögu. Hann varð nefnilega eitt sinn sjálfur að leita sér hjálpar á afskekktum spítala vegna afar óvenjulegra veikinda. Á leiðinni þangað rakst hann á fjörulalla, sjóræningja, völundarhús, Lagarfljótsorminn og alls kyns hræðilegar óvættir, og þurfti á allri sinni kænsku að halda til að komast til botns í ráðgátunni um dularfulla erfingjann.