Ljósin í Dimmuborg

Í Dimmuborg í Mángalíu býr Míría með mömmu sinni. Borgin er heillandi en samt er eitthvað öðruvísi en það á að vera. Ásamt Kraka, uppeldisbróður sínum, fer Míría á stúfana til að komast að rótum vandans og böndin beinast að víðerniskristalnum í Stjörnuturninum. Er hann kannski horfinn? Dularfulla kortið og auga fuglsins í turninum vísa þeim á Myrkland – en þora þau þangað? Ljósin í Dimmuborg er sjálfstætt framhald af ævintýrabókinni vinsælu Brúin yfir Dimmu.