Örlög guðanna

Norræn goðafræði geymir mergjaðar sögur sem gengið hafa kynslóð fram af kynslóð öldum og árþúsundum saman. Hér er heimi þessara sagna lýst frá því hann varð til úr líkama hrímþursins Ýmis og allt til baráttunnar miklu í ragnarökum. Endursögn Ingunnar Ásdísardóttur á texta Snorra-Eddu er aðgengileg og fjörug og lifnar við í stórglæsilegum myndum Kristínar Rögnu Gunnarsdóttur.

Norræn goðafræði fyrir börn 21. aldarinnar.