Sitji guðs englar

Hér kynnast lesendur stórmerkilegri fjölskyldu í Firðinum en þó mest hinni alvörugefnu Heiðu. Úti í heimi geisar stríð, amerískir hermenn þramma um bæinn og mannlífið tekur örum breytingum. Í heimi barnanna eiga sér líka stað miklar sviptingar, gáskafull gleðin ræður ríkjum en sorgin nær að varpa skugga sínum á leik þeirra.

Bókin er í senn bráðfyndin, spennandi og þroskandi. Undir glaðværu yfirborði sögunnar er veruleiki stríðsáranna sem börnin skynja á allt annan hátt en fullorðnir. Bókin er skreytt fallegum myndum eftir Sigrúnu Eldjárn.

Sitji guðs englar er fyrsta bókin í vinsælum bókaflokki eftir Guðrúnu Helgadóttur en í kjölfar hennar komu Saman í hring og Sænginni yfir minni. Leikgerð eftir bókunum var sýnd í Þjóðleikhúsinu og leikin í útvarpi.