Valkyrjan

Hildur er tólf ára kraftmikil stelpa sem lætur engan vaða yfir sig. Dag nokkurn verður hún fyrir óvæntri árás og þegar hún veit næst af sér er allt breytt. Hún er stödd í Goðheimum þar sem þrjár valkyrjur taka hana að sér. Saman halda þær til Ásgarðs, borgar ása, og lenda þar í ótal ævintýrum og hættum. Sjálf goðin, jötnar, dvergar og landvættir koma við sögu og þá ekki síst hinn lævísi Loki.