Forðastu svindlara á húsnæðismarkaði

Ég var nú búinn að nefna það í annarri færslu hvernig maður forðast svindlara á húsnæðismarkaðnum í Lundi en mér finnst fullt tilefni til að hræra í eina færslu sem fer dýpra í málið.

Ef þú ert í íbúðaleit núna þá eru allar líkur á að þú komist í samband við svindlara því þeir eru gjörsamlega úti um allt, enda er þetta gróðavænlegur bissness. Þeir birta auglýsingar á Qasa1 (Blocket), Facebook og fleiri vefsvæðum og reyna að fá þig til að greiða inn á íbúð sem þeir eiga ekki. Þeir hafa samband við þig þegar þú birtir auglýsingar og þeir reka meira að segja sínar eigin vefsíður þar sem þeir plata þig til að borga áskriftargjald til að skoða vef sem er yfirleitt fylltur með fölskum auglýsingum.

Dæmi um svona síður er BostadsZonen og BostadsHub. Þau hamstra auglýsingar af öðrum leigusíðum og krefja þig svo um greiðslu mánaðargjalds til að geta haft samband við auglýsendurna. Það virðist ekkert stórmál, enda er gjaldið lágt, en minna en mánuði síðar tífaldast gjaldið (samkvæmt klausu í skilmálunum sem þér yfirsást líklega) og við tekur langt ferli að loka áskriftinni, sem krefst þess oft að maður hreinlega loki kortinu sínu.

Í íbúðaleitinni muntu kannski rekast á Swedish Living, sem heldur sig (að mestu leyti) réttu megin laganna og stólar á vanþekkingu þína á leigumarkaðnum. Þau “finna” fyrir þig húsnæði hjá aðilum sem almennt er auðvelt að komast að hjá vegna þess að húsnæðið er illa staðsett eða frekar sjoppulegt. Dæmi um þetta er New Greenhouse2 í útjaðri Lundar sem býður fólki að hafa samband beint gegnum vefsíðuna til að óska eftir íbúð, sem er nokkuð auðsótt. Fyrir litlar 50 þúsund íslenskar krónur hefur Swedish Living milligöngu um að senda þennan tölvupóst fyrir þig.

Swedish Living bíta svo höfuðið af skömminni með því að krefja þig um afrit af vegabréfinu þínu án þess að bjóða upp á örugga leið til að senda það eða þá að þeir geymi það á öruggan hátt þegar það er í þeirra fórum. Stolið vegabréf er ekkert grín og það á líka við um afrit af því.

Svona gætir þú brugðist við þegar þú uppgötvar að vegabréfið þitt hefur verið notað til að taka lán í þínu nafni.

Facebook er í algjörum sérklassa hvað varðar svindl því það er ekkert mál að búa til falskan aðgang og eftirlitið er ekkert. Svindlarar bæta sér í allar íbúðagrúbbur og leggja bæði út auglýsingar og hafa beint samband við þá sem auglýsa eftir íbúðum. Hér koma nokkrar þumalputtareglur sem hjálpa þér kannski að forðast svindlara.

Hve mikið geturðu borgað? Ef þú hefur samband við leigusala sem byrjar á að spyrja hvað þú getur borgað og hvað þú þarft stórt o.s.frv. þá er það svindl. Leigusalinn veit hvað hann er að bjóða. Fyrirtæki með margar íbúðir eru með sitt eigið umsóknarkerfi og það eru engir íbúðamiðlarar að frílansa á Facebook. Þarna er bara verið að láta þig bíta á agnið áður en svindlið getur hafist.

Sendu póst á… Ef þú ert beðin(n) (eftir fyrstu kynningu) um að hafa samband við einhvern gegnum tölvupóst til að fá nánari upplýsingar, þá er það svindl. Fólkið á Facebook veiðir og svo fer sjálft svindlið fram gegnum tölvupóst sem er vonlaust að rekja. FB aðganginn nota þau til að vera í ótal húsnæðisgrúbbum og taka ekki sénsinn á að hann sé tilkynntur. Og tilkynning frá ykkur skilar engu þegar þið áttið ykkur á að þið eruð hálfri milljón fátækari, því svindlið gerðist ekki á FB.

Frábæri leigusalinn. Hver sem heldur því fram að hán hafi samband við þig til að mæla með leigusalanum sínum sem var svo frábær (og segir þér svo að hafa samband gegnum tölvupóst) er að ljúga. Það er nákvæmlega enginn að þvælast um á netinu til að redda fyrrverandi leigusalanum sínum næsta leigjanda.

Millifærslan. Ef þú ert beðin(n) um að millifæra á reikning sem ekki er sænskur þá er það svindl. Það er bara svo einfalt.

Flýtirinn. Ef leigusalinn ýtir á þig að greiða staðfestingargjald til að komast fram fyrir aðra, eða til að sýna að þér sé alvara, þá er það svindl. Húsnæðismarkaðurinn er erfiður og svikararnir leika á stressið til að moka inn peningum. Eðlilegt ferli er að þið komist að samkomulagi og skrifið undir samning og SVO er hægt að huga að greiðslu.


Hvar og hvernig svo sem þið leitið að húsnæði þá eru hér nokkur atriði til viðbótar sem geta hjálpað þér:

Alvöru manneskja? Leitið alltaf að manneskjunni sem þú talar við inni á síðum eins og ratsit.se. Flettu upp bæði heimilisfanginu og nafninu og sjáðu hvað dúkkar upp. Svo að segja allir eru skráðir á Ratsit nema þeir biðji sérstaklega um að vera fjarlægðir.

Rannsakaðu myndefnið. Ef þú færð myndir, berðu þær þá saman við heimilisfangið á Google Maps og sjáðu hvort allt stemmir. Er útsýnið út um gluggann eins og það á að vera? Notaðu Street View og athugaðu hvort gluggarnir líta út eins og á myndunum.

Notaðu líka Google Lens til að athuga hvort myndirnar eru sóttar af netinu eða eru notaðar í auglýsingum fyrir fleiri íbúðir.

Biddu um myndsímtal inni í íbúðinni. Ef það er ekki mögulegt, biddu þá um myndsímtal með leigusalanum. Það er engin gulltrygging en svindlararnir reyna yfirleitt að koma sér hjá því.


Að lokum hrelli ég ykkur með því að þó þið fylgið öllum ráðunum til hins ítrasta getið þið samt lent í svikurum því sumir eru svo ótrúlega bíræfnir. Fyrir norðan býr náungi sem auglýsir reglulega raunverulegar íbúðir, meðal annars í Lundi. Hann pressar fólk að borga inn á leigusamning og skilur það svo eftir með tómar hendur. Hann notar sitt eigið nafn, kennitölu og bankareikning í þetta. Ég veit að þetta er svikahrappur vegna þess að ég hef verið í sambandi við raunverulega eigendur íbúðanna, lögregluna og Qasa (þar sem hann veiðir fórnarlömb með stöðugt nýjum aðgöngum) en enginn hefur stoppað hann því lögreglan hefur ekki áhuga á málum þar sem fórnarlambið er utan Svíþjóðar þó gerandinn sé það.

Annað dæmi er náungi með upphafsstafina TJ. Hann auglýsir oft í mánuði herbergi til leigu í íbúðinni sinni. Hann lætur þig millifæra á sænskan reikning og gerir jafnvel samning en þegar þú mætir með töskurnar segir hann þér að fara í rassgat og skellir á þig hurðinni. Þetta veit ég vegna þess að ég hef verið í sambandi við mörg af fórnarlömbum hans sem hafa sum kært hann án árangurs.

Ef þú hefur ekki hætt við flutninginn til Lundar eftir að hafa lesið þessa færslu þá get ég fullvissað þig um að Lundur er góður og öruggur staður. Það er nóg til af húsnæði hérna ef maður bara veit hvernig á að bera sig að.

Ef þú ert í samskiptum við einhvern og eruð ekki 100% viss þá hjálpa ég þér gjarnan að átta þig. Ég er búinn að takast á við fjölmarga hrappa (í sjálfboðavinnu gegnum stúdentaleigusíðu) og sé í gegnum flest sem þeir reyna.

Gangi þér vel!


Neðanmáls…

  1. Qasa auglýsir sig sem öruggan valkost en ég hef ítrekað verið í sambandi við þá til að tilkynna svikara sem nota „staðfesta“ aðganga og birta falskar auglýsingar. ↩︎
  2. Ég mæli yfirleitt ekki með New Greenhouse nema fólk sé í húsnæðisneyð því ég hef illan bifur á fyrirtæki sem biður þig að tilgreina í umsóknarferlinu hve mikið þú ert tilbúin(n/ð) að borga, er með þriggja stjörnu umsagnir á netinu og notar einhvern gervigreindarkarakter til að leigja út sum herbergin á yfirverði gegnum Airbnb. ↩︎

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

error: Þetta efni er höfundarréttarvarið.