,

Sögur úr Njálu: Blóðregn

Bergþórshvoll stendur í ljósum logum. Brennumenn varna mönnum útgöngu en í skjóli reykjarins sleppur samt einn – Kári Sölmundarson. Í hans hlut kemur að hefna brennunnar, þar með barnungs sonar síns, fjölskyldu og góðra félaga.

Blóðregn er æsispennandi teiknimyndasaga byggð á lokaþætti Njáls sögu. Hér lifna þekktar persónur við á glænýjan hátt og þúsund ára gömul átök eru færð í mál og myndir nýrra tíma, jafnt fyrir þá sem þekkja söguna vel og þá sem eru að koma að henni í fyrsta sinn.