Bernskubrek Ævars vísindamanns 2: Vélmennaárásin

Þekkir þú einhvern sem vill helst hanga í tölvunni allan daginn? Þannig var Ævar vísindamaður þegar hann var ellefu ára. Það gekk meira að segja svo langt að hann skráði sig í sumarskóla til að þurfa ekki að vera úti í sólinni. En það reyndist vera stórhættuleg ákvörðun. Þetta var nefnilega enginn venjulegur skóli…