Það er algert leyndarmál að það á að flytja heilan sekk af peningaseðlum með lestinni milli Víkurbæjar og Akra¬fjarðar. Lögreglustjórinn er með í för og ætlar ekki að sleppa peningunum úr augsýn en sætin eru mjúk og lestin vaggar þægilega á teinunum svo að hann sofnar.
Skyndilega togar einhver í neyðarhemilinn og lestin snarstansar! Þá áttar lögreglustjórinn sig á að peningarnir eru horfnir …
Til allrar hamingju eru Lalli og Maja ekki langt undan.
Íris Baldursdóttir þýddi.