Sirkusráðgátan

Sirkus Splendídó er kominn til Víkurbæjar! Þar sýna töframaðurinn Trocadero og trúðurinn Bóbó listir sínar. Sara og apinn Sylvester gleðja gesti, kraftakarlinn Ali Pascha glímir við áhorfendur og allir skemmta sér konunglega.

Það verður þó uppi fótur og fit þegar seðlaveski, símar og hálsmen hverfa sporlaust á miðri sýningu. En þaulvanir spæjarar, Lalli og Maja, eru á staðnum …

Fjörlegar sögur Martins Widmark um bekkjarsystkinin Lalla og Maju hafa farið sigurför um heiminn. Íslenskir spæjarar á aldrinum 6 –10 ára fagna nú þriðju ráðgátunni: safaríkri blöndu af spennu og sprelli.

Íris Baldursdóttir þýddi.