Skólaráðgátan

Glæpamál í grunnskóla – hvað er í gangi?!?

Skyndilega er gífurlegt magn falsaðra peningaseðla í umferð í Víkurbæ. Lalli og Maja trúa varla sínum eigin augum þegar vísbendingarnar leiða þau að Víkurbæjarskóla. Til að finna sökudólginn þarf að safna fingraförum með mikilli útsjónarsemi og meira að segja spæja langt fram á kvöld.

Íris Baldursdóttir þýddi.