Mitt er þitt

Mitt er þitt er saga um hressa stráka og stelpur sem taka til sinna ráða þegar einn úr vinahópnum er sakaður um þjófnað í skólanum. Kiddi, Tryggvi og Skapti eru saman öllum stundum þótt áhugamál þeirra séu ólík. Kiddi og Tryggvi lifa fyrir fótboltann og vonast til þess að fá tækifæri með landsliðinu en Skapti er í ballett og dudar sér við tæknibrellur þess á milli. Skömmu eftir að ókunnug stelpa utan af landi heimsækir Skapta fer allt í bál og brand í skólanum. Tryggvi hjálpar Hildi þegar hún slasar sig en var hún aðeins að leiða hann í gildru? Sóley flytur til Reykjavíkur en kemur strákunum á óvart með framgöngu sinni við að upplýsa þjófnaðinn. Þegar henni er rænt fyllast strákarnir eldmóði. Byrja Kiddi og Sóley saman? Verður Tryggvi rekinn úr skólanum? Komast strákarnir í landsliðið?