Þokan

Það eru liðnir þrír mánuðir frá því Jóel bjargaði sér hetjulega úr klóm erlendra glæpamanna og hann er orðinn leiður á sífelldum spurningum fjölmiðlafólks um afrek hans. Hann vill bara vera í friði og hlakkar til að slaka á með vinum sínum á Snæfellsnesi heila helgi: fíflast í Línu og Tomma, hlusta á Fannar æfa sig fyrir Gettu betur og spjalla við Ásthildi og Hildigunni. En helgin verður ekki eins og Jóel sá fyrir sér. Hvað er eiginlega á seyði í norsku húsunum á Hellnum? Getur verið að fleiri en mamma Hildigunnar og Valdi vitlausi, vinur hennar, trúi á forna egypska konunga sem minna mest á fólkið í Avatar og búi sig undir upphaf nýja heimsins sem senn rís á Íslandi?